Eyrargata Eyrabakka- Umsókn um framkvæmdaleyfi. (endurnýjun yfirborðs götu)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 3
24. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir á 4. fundi skipulags- og byggingarnefndar, dags. 17. ágúst sl.
María Dís Ásgeirsdóttir f.h. Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar óskaði eftir framkvæmdaleyfi til að rífa af og endurnýja malbik á um 260 m kafla Eyrargötu á Eyrarbakka, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Vegkaflinn afmarkast frá húsi nr.42, að vestan og austur að húsi nr. 49 við Eyrargötu. Mannvirkja og Umhverfissvið mun fara yfir athugasemdir Skipulags- og byggingarnefndar frá fundi 27.7.2022, og skila inn uppfærðum gögnum, sem mæta athugasemdum.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rif og endurmalbikun götu, og lagði til við Bæjarstjórn Árborgar að umsókn verði samþykkt, og skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista tekur til máls.
Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum umsókn um framkvæmdaleyfi of felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.