Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Heiðarstekkur 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 96
20. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Eiríkur Vignir Pálsson hönnunarstjóri f.h. Sævars Þórissonar sækir um leyfi til að byggja 26 íbúða fjölbýlishús. Byggingin er 4 hæðir. Helstu stærðir eru: 2.783,6,m² og 8.242,7m³.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með eftirfarandi fyrirvörum:
- uppdrættir verði leiðréttir í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits
- Hönnuður skili inn lóðauppdrætti í samræmi við ákvæði deiliskipulags og uppdrátturinn verði samþykktur af skipulags- og byggingarnefnd.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

800 Selfoss
Landnúmer: 229340 → skrá.is
Hnitnúmer: 10135810