Deiliskipulag - Lækjargarður
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 5
28. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á fundi skipulags- og byggingarnefndar dags.29.6.2022: "Eiður I. Sigurðsson f.h. landeiganda Lindu Rut Larsen, leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir landspilduna Lækjargarður L166200, sem er tæpir 4 ha að stærð. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að byggja á spildunni íbúðarhús allt að 350m2 aðstærð, tvö gesthús allt að 80m2 að stærð, hvort, auk skemmu allt að 400m2 að stærð. Landspildan er í gildandi aðalskipulagi Árborgar 2010-2030 skilgreint sem landbúnaðarland og er einnig í samræmi við endurskoðað aðalskipulag Árborgar 2020-2036, sem er í lokavinnslu. Aðkoma að er af Votmúlavegi og aðkomuvegi að Lækjargarði. Frestað"
Málið var tekið fyrir á 3. fundi, skipulags- og byggingarnefndar, 27. júlí.
Svar

Bókun 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu máls, þar til nýtt endurskoðað aðalskipulag Árborgar 2020-2036 hefur öðlast gildi.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.