Fyrirspurn um neysluvatn til framleiðslutengdra nota
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 149
19. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Ölvisholt Brewery - fyrirspurn um neysluvatn fyrir framleiðslutengda starfsemi. Ölvisholt Brewery miðar að því að staðsetja framleiðslu sína og aðra starfsemi á Selfossi. Fyrst þarf þó að liggja fyrir hver eru gæði neysluvatns á staðnum og hve mikið magn getur verið til afhendingar í dag og næstu áratugi.
Svar

Bæjarráð vísar erindinu til mannvirkja- og umhverfissviðs til úrvinnslu.