Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 90
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 94
4. maí, 2022
Annað
‹ 14
15
Svar

15.1. 2204178 - Norðurgata 32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Emil Þór Guðmundsson fyrir hönd Jóns Dan Jónssonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 92,2 m2 og 312,6 m3. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar 15.2. 2204210 - Eyravegur 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Rif Sigurður Einarsson f.h. Sigtúns þróunarfélags sækir um leyfi til að rífa húsið að Eyrarvegi 3. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Um er að ræða matshluta 01, hluta 0101, 0102, 0201 og 0202. Fyrir liggur minnisblað um tilhögun niðurrifsins.
Veðbókarvottorð liggur ekki fyrir.

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að eignin sé veðbandalaus og að samþykki meðeiganda liggi fyrir.
Byggingarheimild verður gefin út þegar byggingarstjóri hefur verið skráður á umsóknina. Niðurstaða þessa fundar 15.3. 2204211 - Eyravegur 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Sigurður Einarsson f.h. Sigtúns þróunarfélags sækir um leyfi til að rífa húsið að Eyrarvegi 5, mhl 01 og 02. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Um er að ræða matshluta 01 og 02, hluta 01 0101, 01 0102, 01 0201 og 02 0101. Fyrir liggur minnisblað um tilhögun niðurrifsins.
Veðbókarvottorð liggur ekki fyrir.

Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um að eignin sé veðbandalaus.
Byggingarheimild verður gefin út þegar byggingarstjóri hefur verið skráður á umsóknina. Niðurstaða þessa fundar 15.4. 2204179 - Eyrargata 39 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Pétur Sævald Hilmarson tilkynnir um uppsetningu 11 m2 smáhýsis á lóð og minni háttar breytingu á innra skipulagi á 1. hæð íbúðarhúss. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Breyting innanhúss telst vera lítilsháttar og fellur undir byggingarreglugerð gr. 2.3.6.
Hæð smáhýsis er meira en 2,5 m frá yfirborði jarðvegs skv. uppdrætti og fellur því ekki undir ákvæði 2.3.5 gr. og er því háð byggingarheimild.
Ekki eru gerðar athugasemdir við breytingu innanhúss en uppsetningu smáhýsins er hafnað.

Niðurstaða þessa fundar 15.5. 2204235 - Norðurbraut 32 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Óskar Ingi Gíslason tilkynnir um uppsetningu 25,6 m2 gestahúss. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Stærð húss er meira en 15 m2 fellur því ekki undir ákvæði 2.3.5 gr. og er háð byggingarheimild.

Niðurstaða þessa fundar 15.6. 2204241 - Urðartjörn 4 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi. Dagbjört Þórðardóttir óskar eftir samþykki Árborgar fyrir að setja skjólvegg allt að 180 cm háan á lóðamörk að austanverðu við göngustíg. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Umsækjandi þarf að framvísa samþykki íbúa íbúða nr. 2,6,og 8.
Staðsetningu skjólveggs við göngustíg vísað til samráðsfundar með mannvirkja- og umhverfissviði.

Niðurstaða þessa fundar 15.7. 2204244 - Urriðalækur 23 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Snorri Sigfinnsson tilkynnir um samþykki lóðarhafa að Urriðalæk 21 og Sílalæk 22 vegna uppsetningar vegna smáhýsis nær lóðamörkum en 3m. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Ekki eru gerðar athugasemdir við áformin. Niðurstaða þessa fundar 15.8. 2204245 - Hrísholt 8A - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi Helgi Axel Daníelsson tilkynnir um samþykki lóðarhafa að Vallholti 29 vegna uppsetningar smáhýsis nær lóðamörkum en 3m. Niðurstaða 90. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Ekki eru gerðar athugasemdir við áformin að því gefnu að smáhúsið sé staðsett meira en 3 m frá öðrum mörkum lóðarinnar. Niðurstaða þessa fundar