Áætlun um snjómokstur á reiðvegum í Árborg
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 144
31. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Beiðni frá Hestamannafélaginu Sleipni, dags. 24. mars, þar sem óskað var eftir að áætlun um snjómokstur á reiðvegum í Árborg verði bætt við þær áætlanir sem fyrir eru um snjómokstur á götum, göngustígum og plönum á heimasíðu sveitarfélagsins.
Svar

Bæjarráð vísar erindinu til eigna- og veitunefndar til skoðunar.