Framkvæmdaleyfisumsókn - Stofnlögn frá Þorleifskoti 3. áfangi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 144
31. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 91. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 23. mars sl., liður 4. Framkvæmdaleyfisumsókn - Stofnlögn frá Þorleifskoti 3. áfangi. Jón Sæmundsson f.h Selfossveitna bs. óskað eftir framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar hluta DN350 heitaveitustofnlagnar sem liggur frá Þorleifskoti/Laugardælum í Flóahreppi að Austurvegi 67 á Selfossi. Nú í sumar er gert ráð fyrir að endurnýja alls 160 m. Þvermál stofnlagnarinnar verður það sama og núv. lögn en lítilsháttar hliðrun verður á lagnastæði stofnlagnarinnar þar sem núverandi stofnlögn liggur að hluta til innan lóðar Austurvegar 69 en ný lögn verður alfarið utan lóðarmarka. Fyrirliggjandi er leyfi Vegagerðarinnar um lagningu stofnlagnarinnar í vegstæði Laugardælavegar. Frágangur yfirborðs verður með svipuðu sniði og nú er.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarráð að framkvæmdaleyfisumsókn yrði samþykkt.
Svar

Bæjarráð samþykkir framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar hluta DN350 hitaveitustofnlagnar sem liggur frá Þorleifskoti/Laugardælum í Flóahreppi að Austurvegi 67 á Selfossi.