Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa D-lista - opið bókhald
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 142
17. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Af hverju bíður Sveitarfélagið Árborg bæjarbúum ekki upp á Opið bókhald? Þessu var lofað af núverandi formanni bæjarráðs vorið 2018. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins spurðist fyrir um þetta á bæjarstjórnarfundi fyrir tæpu ári og þá var sagt að opnaði yrði fyrir bókhaldið um haustið. Öll stærri sveitarfélög landsins eru með Opið bókhald þar sem íbúar geta séð í hvað skatttekjurnar fara.
Svar

Bæjarráð óskar eftir svari frá fjármálastjóra fyrir næsta fund bæjarráðs.