Fyrirspurn um lóð
Fossnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 92
6. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá fundar skipulags- og byggingarnefndar 16.3.2022: Þórður Smári Sverrisson f.h. Sláturfélags Suðurlands svf, leggur fram fyrirspurn vegna lóðar í eigu félagsins í Fossnesi landnúmer 178303 (skv, meðfylgjandi loftmynd): Sláturfélag Suðurlands svf, rekur sláturhús í Fossnesi á Selfossi. Þrjá mánuði á ári fjölgar verulega starfsfólki vegna sauðfjárslátrunar í starfsstöðinni sem þarf að sjá fyrir húsnæði. Á fyrrgreindri lóð var húsnæði sem þjónaði því hlutverki að hýsa þetta fólk en þegar komið var að viðhaldi á húsinu reyndist það illa farið og mikið asbest í því og því var það rifið eftir kúnstarinnar reglum. Áhugi er fyrir því að gera slíka aðstöðu að nýju í áföngum. Spurt er hvort leyfi fáist fyrir því að setja upp vinnubúðir (óákveðin gerð) á “léttar? undirstöður, á allt að tveimur hæðum með grunnflöt um 140 fermetrar í fyrsta áfanga fyrir haustið 2022. Skipulagsfulltrúi hefur fundað með forsvarsmönnum SS á Selfossi, og hefur nú verið lögð fram tillaga að byggingu allt að þriggja hús á tveimur hæðum samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd tekur vel í erindið með þeim fyrirvara að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir svæðið og að lokuð girðing verði sett upp umhverfis sláturhúsið fyrir haustið 2022.

800 Selfoss
Landnúmer: 161791 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116194