Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Aðalvík
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 90
16. mars, 2022
Annað
‹ 4
5
Fyrirspurn
Í samræmi við byggingarreglugerð, 5 mgr. gr 2.4.2, óskar byggingarfulltrúi umsagnar skipulagsfulltrúa/skipulagsnefndar, vegna fráviks í gildandi deiliskipulagi. Fyrir liggja aðaluppdrættir vegna byggingarleyfisumsóknar Jórvíkur fasteigna ehf., vegna 6 íbúða fjölbýlishús á lóðinni Aðalvík 4, á Selfossi. Matshluti 0104, inntaksrými 3,0 m2 sem er staðsett undir stigapalli er einnig staðsett utan afmarkaðs byggingarreits.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd telur að um óveruleg frávik frá gildandi deiliskipulagi sé að ræða og gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingaráform.