Deiliskipulagsbreyting
Larsenstræti 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 91
23. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti á fundi 23.2.2022, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi vegna lóðarinnar Larsenstræti 2, á Selfossi. Tillagan hefur verið grenndarkynnt fyrir eigendum i fasteignanna Larsenstræti 4 og 6, Langholti 1 og var gefinn frestur til og með 22.3.2022. Ein athugasemd barst frá Páli Gunnlaugssyni f.h. Smáragarðs ehf, eiganda fasteignarinnar Langholt 1. Gerð er athugasemd við að byggingarreitur á lóðinni Larsenstræti 2 nái að lóðarmörkum Langholts 1. Bent er á aðgengismál og eldvarnir/sambrunahættu.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir innkomna athugasemd. Nefndin felst á rök sem færð eru fram í athugasemd. Skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingu tillögunar ásamt hönnuði þar sem tekið verður tillit til athugasemdar.

800 Selfoss
Landnúmer: 210920 → skrá.is
Hnitnúmer: 10108953