Styrkbeiðni - Rekstur Sigurhæða 2022
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 137
27. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á 134. fundi bæjarráðs frestaði bæjarráð því að taka afstöðu til erindis frá Sigurhæðum um styrkumsókn og vísaði því til umfjöllunar í félagsmálanefnd.
Tillaga frá 30. fundar félagsmálanefndar, frá 24. janúar sl. liður 4. Styrkbeiðni - Rekstur Sigurhæða 2022 Styrkbeiðni frá Sigurhæðum Félagsmálanefnd þakkaði Hildi Jónsdóttur fyrir upplýsandi og góða kynningu á úrræðinu Sigurhæðir. Félagsmálanefnd varð við styrkbeiðni Sigurhæða og lagði til að styrkja úrræðið um 1.100.000 kr.
Svar

Bæjarráð samþykkir tillögu félagsmálanefndar um styrk til Sigurhæða árið 2022 að fjárhæð kr. 1.100.000,- með fyrirvara um fjárheimildir ársins.