Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Dalbæjarland
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 82
1. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Skipulagsfulltrúi leggur fram tillögu að óverulegri breytingu á gildandi deiliskipulagi Dalbæjarlands á Stokkseyri. Breytingin felur í sér að afmörkun skipulagssvæðis er breytt til samræmis við samþykkt deiliskipulag fyrir Tjarnarstíg. Ekki er um aðrar breytingar á skipulaginu að ræða.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga, sem óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sjálfs, leggur skipulagsnefnd til að fallið verði frá grenndarkynningu. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til varðveislu og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.

825 Stokkseyri
Landnúmer: 165816 → skrá.is
Hnitnúmer: 10093834