Beiðni um tilnefningu fulltrúa í Ungmennaráð Suðurlands
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 127
14. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Ungmennaráði Suðurlands, dags. 1. september, þar sem óskað var eftir að sveitarfélagið tilnefndi einn aðalmann og einn varamann til setu í Ungmennaráði Suðurlands.
Bæjarráð vísaði erindinu til Ungmennaráðs Árborgar og óskaði eftir því við ráðið að það skipi einn aðalmann og einn varamann til setu í Ungmennaráði Suðurlands.
Ungmennaráð lagði til að Elín Karlsdóttir yrði aðalmaður og Elín Þórdís Pálsdóttir, yrði varamaður.
Svar

Bæjarráð samþykkir tillögu Ungmennaráðs Árborgar um að Elín Karlsdóttir verði aðalmaður og Elín Þórdís Pálsdóttir varamaður.