Framkvæmdaleyfisumsókn fyrir borholu kalt vatn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 77
22. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Erindið var áður tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 25. ágúst 2021, þar sem afgreiðslu var frestað. Um er að ræða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir borun á kaldavatnsholu í landi Hellis, ln. 161793.
Svar

Framkvæmdaleyfisumsókn var kynnt fyrir eigna- og veitunefnd á 49. fundi nefndarinnar þann 25. ágúst 2021 og engar athugasemdir gerðar. Því leggur skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarráð að framkvæmdaleyfisumsókn verði samþykkt.