Beiðni um kaup á lóðinni Fossnes 5B.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 149
19. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Beiðni frá Guðmundi Tyrfingssyni ehf. þar sem óskað var eftir því að bæjarráð endurskoði afgreiðslu á erindi fyrirtækisins sem var á dagskrá bæjaráðsfundar þann 28. apríl síðastliðinn. Fyrirtækið óskar eftir að fá lóðin keypta, fremur en að gefinn séu út lóðarleigusamningur. Vísar fyrirtækið til sambærilegrar afgreiðslu þar sem sveitarfélagið seldi öðru fyrirtæki lóðarspildu í nágrenninu.
Svar

Bæjarráð samþykkir að selja Guðmundi Tyrfingssyni umrædda lóð á markaðsverði.