Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Menam Brúarstræti 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 66
26. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur móttekið starfsleyfisumsókn frá Andra Má Jónssyni fyrir hönd Menam ehf., kt. 690421 2400 vegna reksturs veitingastaðar að Brúarstræti 2, 800 Selfoss, sbr. meðfylgjandi starfsleyfisumsókn. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir upplýsingum frá skipulags- og byggingarfulltrúa hvort umrædd starfsemi uppfylli ákvæði reglugerðar nr. 506/2010 um breytingu á reglugerð nr. 103/2010, sbr. 2. gr. b: Athafnasvæði matvælafyrirtækja. Húsakynni matvælafyrirtækja skulu vera í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafa hlotið samþykki byggingarnefndar fyrir starfseminni. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa um ofangreinda þætti.
Svar

Byggingarfulltrúi getur ekki veitt umsögn þar sem öryggis og/eða lokaúttekt á mannvirkinu hefur ekki farið fram.

800 Selfoss
Landnúmer: 161979 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058653