Nafn á nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 134
20. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Gert er ráð fyrir að starfsemi geti hafist í nýju hjúkrunarheimili á Selfossi í febrúar næstkomandi. Því er orðið tímabært að sveitarfélagið velji nafn á hjúkrunarheimilið.
Svar

Bæjarráð leggur til að nafnið Ljósheimar verði nafnið á nýju hjúkrunarheimili enda á það sér sögulegan bakgrunn á Selfossi.