Deiliskipulag
Móskógar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 37
9. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 70. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 2. júní sl., liður 17. Deiliskipulag - Mógskógar L 193753.
Lögð var fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Móskóga, Sveitarfélaginu Árborg. Tillagan tók til bygginga á tveimur lóðum, hvor um sig um 1 ha, sem skipt er úr jörðinni Móskógum. Heimilt yrði að byggja íbúðarhús, bílskúr og skemmu á hvorri lóð.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillaga fyrir Móskóga yrði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.