Eftirlitsmyndavélar innan umdæmis lögreglustjórans á Suðurlandi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 113
6. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Bréf frá lögreglustjóranum á Suðurlandi, dags. 9. apríl, með upplýsingum um eftirlitsmyndavélar innan umdæmis lögreglustjórans á Suðurlandi. Einnig er minnisblað, dags. 5. mars, um áætlun á Suðurlandi lagt fram vegna þessa.
Svar

Bæjarráð fagnar átaki í fjölgun öryggismyndavéla en óskar eftir frekari upplýsingum þegar þær liggja fyrir, s.s. um fjölda myndavéla, tilhögun, kostnaðarskiptingu og hugsanlega þörf á vinnslusamningum m.t.t. persónuverndarlaga.