Stækkun á byggingarreit - Heiðarstekkur 5-7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 67
5. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Umsækjandi óskar eftir áliti skipulags- og byggingarnefndar þar sem að fyrirhuguð bygging fer út fyrir gildandi byggingarreit.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd telur að um óveruleg frávik frá deiliskipulagi sé að ræða. Í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkir skipulags- og byggingarnefnd að falla frá grenndarkynningu þar sem að framkvæmdin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda. Skipulags- og byggingarnefnd vísar málinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða.