Útgáfa skuldabréfa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 117
10. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Kynning á niðurstöðu skuldabréfaútboðs. Opið var fyrir innsend tilboð til klukkan 16:00 þann 10. júní 2021. Lagt er til að bæjarráð samþykki tilboð að nafnvirði [XX] m.kr., á ávöxtunarkröfunni X% í nýjan sjálfbæran verðtryggðan skuldabréfaflokk ARBO 31 GSB. Jafnframt er lagt til að heildarútgáfuheimild skuldabréfaflokksins verði opin og getur bæjarstjórn Árborgar þá veitt heimild til frekari stækkunar á skuldabréfaflokknum í framtíðinni.
Svar

Kynning á niðurstöðu skuldabréfaútboðs. Opið var fyrir innsend tilboð til klukkan 16:00 þann 10. júní 2021.
Bæjarráð samþykkir tilboð að nafnvirði 1.400 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 1,35% í nýjan sjálfbæran verðtryggðan skuldabréfaflokk ARBO 31 GSB. Jafnframt samþykkir bæjarráð að heildarútgáfuheimild skuldabréfaflokksins verði opin og getur bæjarstjórn Árborgar þá veitt heimild til frekari stækkunar á skuldabréfaflokknum í framtíðinni.

Gunnar Egilsson, D-lista, sat hjá við afgreiðslu málsins.