Beiðni um vilyrði fyrir lóðinni Eyrarbraut 21 á Stokkseyri
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 113
6. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Beiðni frá Örnu Mathiesen og Eyjólfi Kjalar Emilssyni um vilyrði fyrir lóðunum Eyrarbraut 21 og 23. Áður tekið fyrir á 107. fundi bæjarráðs, þann 5. mars, þar sem því var hafnað vegna þess að unnið var að endurskoðun á heildarskipulagi svæðisins. Ný beiðni og gögn eru lögð fram.
Svar

Bæjarráð hafnar erindinu. Ekki er hægt að samþykkja byggingarreit út í sjóvarnargarðinn, auk þess sem horfa þarf til heildarskipulagsins sem enn er í vinnslu.