Fyrirspurn um stækkun húsnæðis
Austurvegur 42
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 70
2. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Erindið hefur verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 27. maí 2021. Athugasemdir bárust á grenndarkynningartíma.
Svar

Í ljósi innkomna athugasemda við grenndarkynningu varðandi lóðastækkun og stækkun húsnæðis að Austurvegi 42 er erindinu hafnað. Um er að ræða verulega breytingu á lóð og byggingu að Austurvegi 42. Því leggur skipulags- og byggingarnefnd til að unnið verði heildstætt deiliskipulag fyrir umrætt svæði, sem fari í lögbundið skipulagsferli.
Samþykkt samhljóða.

800 Selfoss
Landnúmer: 161872 → skrá.is
Hnitnúmer: 10058488