Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Nauthagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 79
20. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu fyrir Nauthaga var auglýst frá 25. ágúst 2021, með athugasemdafresti til og með 6. október 2021. Tillagan tekur til breytinga á hluta af vestasta reit ú2 þar sem íbúðarbyggð kemur í stað opins svæðis til sérstakra nota. Vestasti hluti ú2 er um 8.000m2 að stærð og minnkar hann í um 6.200m2. Fyrirhuguð íbúðarlóð er u.þ.b. 2.000m2 að stærð og á henni er gert ráð fyrir um 700m2 byggingu með 6-8 íbúðum á einni hæð.
Svar

Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Umsagnir hafa ekki borist frá lögbundnum umsagnaraðilum. Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir umsagnaraðila og að þær leiði ekki til breytinga á tillögunni, leggur skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til staðfestingar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.