Deiliskipulagstillaga
Móavegur 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 70
2. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Deiliskipulagstillaga fyrir Móaveg 4 var auglýst frá 24. febrúar 2021, með athugasemdafresti til og með 7. apríl 2021. Ein athugasemd barst á auglýsingartíma tillögunnar, ásamt umsögnum lögbundinna umsagnaraðila. Á 66. fundi skipulags- og byggingarnefndar var farið yfir innkomnar umsagnir og athugasemdir og skipulagsfulltrúa falið að vinna að breytingum á tillögunni m.t.t þeirra.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir svör og viðbrögð við umsögnum og athugasemdum og felur skipulagsfulltrúa að senda þeim sem gerðu athugasemd svör við þeim. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan með óverulegum breytingum eftir auglýsingu, verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.