Tillaga að deiliskipulagi
Heiðarbrún 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 91
23. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Kjartan Sigurbjartsson Pro-Ark Teiknistofu, leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Heiðarbrún 6, L165659, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðin Heiðarbrún 6, sem er 852m2 að stærð verði parhúsalóð (6-6a), og að heimilt verði að byggja parhús með stakstæðum eða sambyggðum bílskúr. Húsin verði á einni hæð með risi. Hámarksvegghæð allt að 3,5m og mænishæð allt að 6,5m. Nýtingarhlutfall allt að 0,5.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna til auglýsingar fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.