Tillaga að aðalskipulagsbreytingu Árbakka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 79
20. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga að deiliskipulagi fyrir Árbakka var samþykkt í bæjarstjórn Árborgar þann 28. apríl 2021. Í kjölfarið var tillagan send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í erindi Skipulagsstofnunar dags. 12. ágúst 2021 eru gerðar athugasemdir við tillöguna og að sveitarfélagið birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir athugasemdir Skipulagsstofnunar. Athugasemdir snúa m.a. að samræmi við aðalskipulag, viðbrögð við umsögnum umsagnaraðila og samræmi við aðliggjandi deiliskipulagstillögu fyrir Austurveg 65. Brugðist hefur verið við athugasemdum Skipulagsstofnunar og yfirlit yfir þær og viðbrögð eru sett fram í skjalinu "Viðbrögð við athugasemdum Skipulagsstofnunar" dags. 19. október 2021.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að leiðrétt tillaga ásamt fylgiskjölum verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar að nýju í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.