Svæðisskipulag Suðurhálendisins
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 118
24. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð starfshóps frá 25. maí sl. Erindi framkvæmdastjóra SASS, þar sem óskað er eftir að skipulagslýsing vegna svæðisskipulags Suðurhálendis verði lögð fram til samþykktar í bæjarráði.
Svar

Bæjarráð hefur farið yfir lýsingu skipulagsáforma fyrir Svæðisskipulag Suðurhálendis 2020-2032 sem samþykkt var á fundi Svæðisskipulagsnefndar þann 25. maí sl. Bæjarráð samþykkir að skipulagslýsingin verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og grein 3.2.4 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013.