Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 79
20. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Sveitarfélagið Árborg hefur að undanförnu unnið að heildarendurskoðun aðalskipulags Árborgar. Tillagan hefur verið kynnt íbúum á opnum fundum á Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi. Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem tekur til alls lands innan marka sveitarfélagsins. Í aðalskipulagi er sett fram stefna sveitarstjórnar um þróun sveitarfélagsins varðandi landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál.
Svar

Skipulags- og byggingarnenfnd leggur til við bæjarstjórn að tillaga að heildarendurskoðun aðalskipulags Árborgar 2020-2036 verði samþykkt til auglýsingar og send Skipulagsstofnun til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.