Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 2
22. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 1. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 15. júní sl. liður 2. Tillaga um endurskoðun aðalskipulags Árborgar 2010-2030
Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 20.10.2021, að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 í samræmi við ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun var í kjölfar samþykktar bæjarstjórnar send tillaga til yfirferðar, og gerði stofnunin í bréfi dags. 16.12.2021 nokkrar athugasemdir, sem var brugðist við. Tillagan var auglýst í samræmi við 31.gr. skipulagslaga, í Lögbirtingablaði, Fréttablaðinu , Dagskránni miðvikudaginn 16.3.2022 og var veittur frestur til athugasemda til og með 27.4.2022. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar auk tengingar við vefsvæði ráðgjafafyrirtækisins Eflu. Borist hafa umsagnir frá lögboðnum umsagnaraðilum auk nokkurra frá almennum borgurum. Í samræmi við 32.gr. skipulagslaga nr.123/2010, liggur fyrir fundi skipulags- og byggingarnefndar samantekt á athugasemdum og einnig tillögur að svörum við athugasemdum og ábendingum. Gerðar hafa verið óverulegar breytingar á tillögu í kjölfar ábendinga og athugasemda umsagnaraðila og almennrar borgara. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti í samræmi við 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Nefndin taldi að þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögu eftir að auglýsingu lauk, séu ekki þess eðlis að auglýsa skuli að nýju.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn Árborgar að tillagan yrði samþykkt í samræmi við 32.gr. skipulagslaga nr.123/2010, og feli skipulagsfulltrúa að svara þeima athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 1. og 2. mgr. 32.gr. skipulagslaga.
Svar

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Sigurjón V. Guðmundsson, S-lista taka til máls.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Bæjarstjórn Árborgar telur að þær breytingar sem gerðar hafa verið á tillögu eftir að auglýsingu lauk, séu ekki þess eðlis að auglýsa skuli að nýju.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að svara þeima athugasemdum og ábendingum sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 1. og 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.