Deiliskipulagsbreyting - Dísarstaðaland
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 40
20. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga af 77. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 22. september, liður 9. Deiliskipulagsbreyting - Dísarstaðaland. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Dísastaðarlandi sem nær yfir hluta Asparlands, Bjarmalands, Fagralands og Huldulands, var samþykkt til auglýsingar af bæjarstjórn Árborgar þann 21. febrúar 2018. Frá samþykkt tillögunnar til auglýsingar hafði verið unnið skv. henni, en komið hafði í ljós að tillagan tók aldrei formlega gildi með birtingu auglýsingar í b-deild stjórnartíðinda.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti að tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Dísastaðarlandi yrði endurauglýst vegna tímafresta.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.