Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 395
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar: 1. Hvaða hönnunarviðmið gilda um staðsetningu ljósastaura, umferðarmerkja og annars búnaðar við göngu- og hjólastíga og hvernig er tryggt að þeim sé fylgt? 2. Hvernig er gæðaeftirliti háttað við hönnun og framkvæmdir og hver ber ábyrgð á lokaúttekt áður en stígar eru teknir í notkun? 3. Er til staðar verklag til að skrá og lagfæra hindranir og hönnunargalla sem koma í ljós eftir að stígar hafa verið teknir í notkun? 4. Er haft samráð við hjólasamfélagið við hönnun hjólastíga? 5. Er frágangur hjólastígs við Heklureit endanlegur og í samræmi við gildandi hönnunarviðmið? Greinargerð fylgir fyrirspurn.