Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 395
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á minnisblaði sérfræðinga umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Dýraþjónustu Reykjavíkur, umhverfis- og skipulagssviðs Hafnarfjarðarbæjar, umhverfissvið Kópavogsbæjar og skipulags- og umhverfissviðs Seltjarnarness um fuglalíf og fóðurgjafir á höfuðborgarsvæðinu.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun umhverfis- og skipulagsráðs:
Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir vandaða vinnu sérfræðinga Dýraþjónustu Reykjavíkur og tekur undir áhyggjur þeirra af neikvæðum áhrifum af óæskilegri fóðrun fugla við Tjörnina og í landi Reykjavíkur. Þá er ljóst að mikil mengun af m.a. lífrænum efnum fyrirfinnst nú þegar í Tjörninni og mun aukið álag vegna offóðrunar stefna lífríki hennar og búsvæðum fugla í hættu. Ráðið telur mikilvægt að leitað verði samstarfs við Dýravaktina og þá sjálfboðaliða sem hafa sýnt fuglalífi á höfuðborgarsvæðinu mikla umhyggju. Bestum árangri verður náð með því að nýta þennan velvilja og kraft í góðu samstarfi við sérfræðinga, þannig að velferð fugla og vernd lífríkis verði ávallt í fyrirrúmi með það að markmiði að einungis fóðra villta fugla í Reykjavík þegar þörf er á.