Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
10.Brautarholt 63 - USK26100438
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23100249 vegna lokaúttektar í húsi á lóð nr. 63 við
Brautarholt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 13. febrúar 2024.
11.Bryggjugata 8 - USK26110046
Sótt er um leyfi til að setja kælirými þar sem áður voru 3 bílastæði í rými 0002 í kjallara mhl.
06, ásamt þessu er sótt um að bæta við útigeymslu á þakpalli og að breyta innra skipulagi í
veitingastað , flokki II, tegund b, á 7. hæð í hóteli nr. 8 við Bryggjugötu.
Erindi fylgir skýrsla brunahönnuðar dags: 30. apríl 2020 og yfirlit breytinga.
12.Depluhólar 2 - USK26050360
Sótt er um leyfi til að innrétta vinnustofu í bílskúr, breyta gluggum og fjarlægja bílskúrshurð
auk þess sem sótt er um leyfi fyrir 1,8 m háum steyptum skjólvegg meðfram lóðarmörkum til
suðurs og austurs við einbýlishús á lóð nr. 2 við Depluhóla.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdrætti.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
13.Fiskislóð 3 - USK26090021
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í verslunarhúsi á lóð nr. 3 við Fiskislóð.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
14.Funahöfði 17A - USK25120081
Sótt er um leyfi til að koma fyrir brunastigum frá 2. og 3. hæð við sitt hvorn enda suðurhliðar
verslunar- og skrifstofuhúss við Funahöfða 17a, mhl.02, á lóð nr. 17 við Funahöfða.
Erindi fylgir samþykki undirritað af ráðsmanni f. hönd eigenda húss nr. 17 dags. 10.
september 2026 og samþykki meðeigenda í húsi nr. 17a við Funahöfða og yfirlit breytinga á
samþykktum aðaluppdráttum.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
15.Glaðheimar 26 - USK24110063
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna gerðar eignaskiptasamnings, þannig að
stærðum og innra skipulagi íbúða 0001 og 0002 auk aðgangs að sameiginlegum
inntaksrýmum, hefur verið breytt í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 26 við Glaðheima.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á aðalteikningu dagsettri 20. maí 2025, ódagsett
greinargerð fasteignasala um staðsetningu mæla og inntaka og yfirlit breytinga á fylgiblaði
dags. 10. apríl 2024 ásamt afriti af samþykktum aðaluppdrætti.
16.Grettisgata 20A – breytingaerindi - USK26040120
Sótt er um leyfi til þess breyta erindi USK24060182 þannig burðarsúlur eru settar undir svalir
á 2. hæð í bakhúsi, mhl.02, og að innra skipulagi íbúða er breytt vegna lagnaleiða á 2. og 3.
hæð fjölbýlishúss, mhl.01, á lóð nr. 20 A við Grettisgötu.
Afgreiðist samhlíða erindi USK26040121, sem fjallar um samskonar framkvæmir fyrir
aðliggjandi hús á lóð nr. 20B við Grettisgötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 24. febrúar 2026 greinargerð vegna breytinga
dags. 12. apríl 2026 og yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
Stærð mhl. 01 eftir breytingu: 380,4 ferm., 1.243,7 rúmm.
Stærð mhl. 02 eftir breytingu: 148,8 ferm., 507,9 rúmm.
17.Grettisgata 20B – breytingaerindi - USK26040121
Sótt er um leyfi til þess breyta erindi USK24060181 þannig að innra skipulagi íbúða er breytt
lítillega og byggð útbygging með glugga þar sem áður var stigi upp á 1. hæð íbúðarhúss á
lóð nr. 20B við Grettisgötu.
Stækkun mhl. 01: 3,5 ferm.
Mhl. 01 eftir stækkun: 391,2 ferm., 1.273,3 rúmm.
Afgreiðist samhlíða erindi USK26040120, sem fjallar um samskonar framkvæmir fyrir
aðliggjandi hús á lóð nr. 20A við Grettisgötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 24. febrúar 2026, greinargerð vegna breytinga
dags. 12. apríl 2026, yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum og umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2026.
18.Koparslétta 4 – breytingaerindi - USK26100535
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN0617225 með því að breyta innra skipulagi í mhl. 11 á
lóð nr. 4 við Koparsléttu.
19.Kringlan 4-12 - USK26080307
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24090268 vegna lokaúttektar með því að hætta við að
byggja geymsluloft ,fjarlægja stiga og breyta byggingarlýsingu í verslun og hársnyrtistofu í
Kringlunni á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
20.Krummahólar 6 - USK26100115
Sótt er um leyfi til að koma fyrir djúpgámum við fjölbýlishús á lóð nr. 6 við Krummahóla.
21.Krókháls 9 - USK26080263
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN045317 og USK23060184 með því að breyta innra
skipulagi í húsi á lóð nr. 9 við Krókháls.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 15. ágúst 2023.
22.Laugavegur 54 - USK26090298
Sótt er um leyfi til að innrétta smávöruverslun í kjallara verslunarhúss á lóð nr. 54 við
Laugaveg.
23.Laugavegur 62 - USK26010455
Sótt er um leyfi til að setja upp hlið (bómu) í portinu á lóð nr. 62 við Laugarveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 16. október 2002 og 22. desember 1977.
24.Norðurbrún 22 – breytingaerindi - USK26040459
Sótt erum leyfi til að breyta erindi USK24060038 vegna lokaúttektar þannig að bætt hefur
verið við glugga á vesturhlið sólskála parhúss nr. 22, mhl.02, á lóð nr. 20-22 við Norðurbrún.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 3. júní 2026
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
25.Nóatún 17 - USK26060034
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101 í verslunarhúsi á lóð nr. 17 við Nóatún
Erindi fylgir yfirlit breytinga
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
26.Ólafsgeisli 29 - USK26090468
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN021801 vegna lokaúttektar í einbýlishúsi á lóð nr. 29 við
Ólafsgeisla.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
27.Reykjastræti 6 – breytingaerindi - USK25110252
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055542, breyta innra skipulagi, sameina rými 0101 og
0102, stækka rými fyrir útibú Landsbankans og til að innrétta veitingastað í flokki I, teg. E fyrir
30 gesti og sýningarrými í í syðsta hluta 1. hæðar í húsi Landsbankans í Reykjastræti 6, sem
er mhl. 16 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
Skilyrt er að gera viðauka við eignaskiptayfirlýsingu og sameina fasteignirnar tvær í eina.
28.Safamýri 26 - USK26100537
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á áhorfendasvæði og innrétta veitingastað í fl. II,
teg. g í íþróttahúsi Víkings á lóð nr. 32 við Safamýri .
29.Seljavegur 1A – breytingaerindi - USK26100173
Sótt er um leyfi til breyta erindi USK26100173 með því að bæta við útihurð á íbúðarhús á lóð
nr. 1a við Seljaveg.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
30.Skarfagarðar 2 – breytingaerindi - USK26090213
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25070174 með því að koma fyrir kælum og pökkun í
áður óráðstöfuðu rými 0203 í húsi á lóð nr. 2 við Skarfagarða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum dags. 3. desember 2024.
31.Skeljanes 8 - USK25100120
Sótt er um leyfi til að breyta notkun og innra skipulagi þannig að opnað er á milli þvottahúss
og bílgeymslu sem breytt verður í tómstundaherbergi, geymslu og hjólageymslu auk þess
sem bílskúrshurð er fjarlægð á rými 0002, í einbýlishúsi á lóð nr. 8 við Skeljanes.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 1. júlí 2025.
32.Skildingatangi 2 - USK26090442
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við einbýlishús á lóð nr. 2 við Skildingatanga.
Stækkun: 91 ferm., 317,2 rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum uppdráttum dags. 25. júní 2019.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
33.Skipholt 50D - USK26060388
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð og innrétta fyrir starfsemi Menntaskóla í
Tónlist í húsi á lóð nr. 50D við Skipholt.
34.Skipholt 6 - USK26100411
Sótt er um leyfi til að endurgera glugga á suðurhlið, setja nýja gönguhurð og breyta innra
skipulagi í bílskúr, mhl. 2 á lóð nr. 6 við Skipholt.
35.Skúlagata 28 - USK26060084
Sótt er um leyfi til að innrétta keilusal í áður óráðstöfuðu rými á 1. hæð í húsi á lóð nr. 28 við
Skúlagötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
36.Spítalastígur 4B – breytingaerindi - USK26110045
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23110281 vegna lokaúttektar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 4
við Spítalastíg.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
37.Stuðlasel 7 - USK26100439
Sótt er um leyfi til að stækka svalir á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 7 við Stuðlasel.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 13. nóvember 1975.
38.Síðumúli 24-26 - USK26100541
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta tvær verslanir í rými 0101 í húsi á lóð
nr. 24-26 við Síðumúla.
39.Sólvallagata 84 - USK26100205
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í að innra skipulagi hefur verið breytt
og innréttuð nuddstofa í rými 0115 í húsi á lóð nr. 15 við Sólvallagötu.
40.Thorvaldsensstræti 2 – breytingaerindi - USK26090150
Sótt er um leyfi til að útbúa nýja flóttaleið og bæta flóttaleið sem fyrir er í veitingastað á lóð
nr. 2 við Thorvaldsensstræti.
Erindi fylgir minnisblað um brunavarnir frá Lotu dags. 11. júní 2026 og skýringar hönnuðar
dags. 25. júní 2026.
41.Tryggvagata 8 - USK26090313
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101, veitingastað í flokki II, tegund A, í
verslunar- og íbúðarhúsi á lóð nr. 8 við Tryggvagötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum uppdráttum dags. 15. febrúar 2011.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
42.Úlfarsbraut 124 - USK26100336
Sótt er um leyfi til að skilgreina rými 0208, 0305 og útisvæði 0118 sem veitingastað í flokki II,
tegund G í íþróttamiðstöð á lóð nr. 122 við Úlfarsbraut.
43.Vatnagarðar 6 – breytingaerindi - USK26090215
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK26020415 með því að breyta stefnu ramps, breyta
hurðum og bæta pall í iðnaðarhúsi á lóð nr. 6 við Vatnagarða.
44.Þönglabakki 1 - USK25110395
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi verslunar Nettó í rými 0101 í verslunar- og
skrifstofuhúsi við Þönglabakka 1, mhl.06 á lóðinni Álfab.12-16/Þönglab.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 18. september og 16. október
2018.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Fundi slitið kl.15:20
Brynjar Þór Jónasson
Edda Þórsdóttir
Sigrún Reynisdóttir
Dagný Geirdal
Böðvar Páll Jónsson.
Auður Eygló Andrésdóttir