Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1085
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Grósku ehf. , dags. 24. september 2026, ásamt greinargerð, dags. 24. september 2026, um niðurfellingu kvaðar um sameiginlega akstursaðkomu að bílakjallara Kristínargötu 1 og Kristínargötu 3. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. október 2026.
Svar

Neikvætt er tekið í fyrirspurnina. Ekki hafa komið fram nýjar upplýsingar eða breyttar aðstæður sem gefa tilefni til að falla frá kvöð um sameiginlega akstursaðkomu eða endurskoða fyrri afgreiðslu málsins. Sjá fyrirvara og nánari upplýsingar í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. október 2026.