Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1084
Annað
‹ 11
12
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Björns Guðbrandsson f.h. Eikar fasteignafélags, dags. 21. september 2026, um afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að endurskoða takmarkanir aðalskipulags varðandi matvöruverslun á lóð Skútuvogs 14-16, samkvæmt röksemdarfærslu Arkís arkitekta, dags. 18. september 2026. Ekki er lögð fram tillaga um útfærslu matvöruverslunar með fyrirspurn. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa og deildar aðalskipulags, dags. 16. október 2026. Skipulagsfulltrúi og deild aðalskipulags telja að ekki sé tímabært að endurskoða takmarkanir um matvöruverslun á lóð Skútuvogs 14-16 þar sem um er að ræða götuhorn sem liggur meðfram mikilvægum samgönguásum og skipulagssvæðum sem koma til með að taka umtalsverðum breytingum á næstu árum. Sjá fyrirvara og nánari upplýsingar í umsögn skipulagsfulltrúa og deildar aðalskipulags, dags. 16. október 2026.