Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1081
Samþykkt
‹ 19
20
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. , dags. 18. september 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Ártúnshöfða, svæðis 7A, vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Breiðhöfða. Í breytingunni sem lögð er til felst fjölgun íbúða um 9 í byggingum PA og PB á lóð A, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. , dags. 18. september 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óverulega breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.