Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1086
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Freys Frostasonar , dags. 9. september 2026, ásamt greinargerð, dags. 28. ágúst 2026, um breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 8-14 við Austurstræti, sem felst í að heimilt verði að vera með gististað í flokki II á 4. og 5. hæð hússins og að geymslur verði staðsettar í kjallara eftir atvikum. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. nóvember 2026. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi eru gististaðir í flokki II-IV óheimilir á umræddum lóðum. Neikvætt er tekið í að breyta skilmálum deiliskipulags þannig að gististaðir í flokki II verði heimilir, þar sem það samræmist ekki ákvæðum aðalskipulags. Deiliskipulag skal vera í samræmi við aðalskipulag. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags þannig að heimilt verði að staðsetja geymslur íbúða í kjallara, enda verði sýnt fram á að aðgengi að þeim sé fullnægjandi. Að öðru leyti vísast til fyrirvara og nánari upplýsinga í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. nóvember 2026.
101 Reykjavík
Landnúmer: 100847 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001119
Deiliskipulag