Lögð fram fyrirspurn
Odds Kristjáns Finnbjarnarsonar
, dags. 4. september 2026, um áður gerðar breytingar í kjallara og bílskúr hússins á lóð nr. 3 við Vesturfold þar sem búið er að innrétta geymslu, baðherbergi og sjónvarpskrók í kjallara og skipta upp bílskúr sem nú er nýttur sem mótorhjólageymsla og alrými og svefnherbergi, samkvæmt uppdr. THG arkitekta, dags. 4. september 2026. Annarri bílskúrshurðinni hefur verið lokað og í staðinn komin gönguhurð og gluggi. Einnig er lögð fram skoðunarskýrsla Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., dags. 4. mars 2026. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. nóvember 2026.