Fyrirspurn
Lögð fram umsókn 1816 ehf., dags. 3. september 2026 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar að Þverholti 14 og 16-18 og Rauðarárstíg 31 og afmarkast skipulagssvæði af Rauðarárstíg til vesturs, lóðinni Rauðarárstíg 27-29 til norðurs að hluta, og að hluta Rauðarárstíg 25 til norðurs, að Þverholti til austurs og lóðunum Þverholti 20, 20A og Rauðarárstíg 33 til suðurs. Í tillögunni sem lögð er til felst að settur er skipulagsrammi utan um endurgerð og hækkun núverandi húss við Þverholt 16-18. Gert er ráð fyrir að húsið verði blandað íbúðar- og atvinnuhúsnæði með íbúðum á efri hæðum og vinnustofum/geymslum á jarðhæð/kjallara. Tillagan byggir á því að nýta núverandi byggingu og innviði eins og kostur er og bæta ofan á bygginguna í stað þess að rífa og byggja nýtt frá grunni. Með því er stuðlað að betri nýtingu byggðar í grónu borgarumhverfi og dregið úr þörf fyrir nýtt land undir uppbyggingu. Deiliskipulagið skilgreinir einnig aðkomu, dvalarsvæði, hjóla- og bílastæðalausn, sorp, kvaðir og tengingu við Þverholt 14, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti ASK arkitekta, dags. 2. september 2026. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdráttur ASK arkitekta, dags. 2. september 2026.