Síðast Samþykkt á fundi fyrir 19 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 386
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis- og skipulagsráði leggja til að gjaldskylda á gjaldskyldusvæðum P1 og P2 verði stytt um klukkustund á kvöldin, alla daga, úr kl. 21 í kl. 20. Nýr gjaldskyldutími á P1 og P2 verður eftir breytinguna, virka daga frá kl. 9–20 og laugardaga og sunnudaga frá kl. 10–20. Fyrirhuguð stytting gjaldskyldu er liður í áherslum borgarinnar um að bæta aðgengi að miðborginni, styðja við mannlíf og auðvelda fólki að sækja verslun, þjónustu og menningarviðburði á kvöldin. Breytingin er hugsuð sem fyrsta skref í heildarendurskoðun gjaldskyldukerfisins, rekstri og þjónustu bílahúsa og fyrirhugaðri könnun meðal íbúa- og hagaðila um framtíðarþróun gjaldskyldu og gjaldskyldusvæða.
Svar

Samþykkt. Fulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks samþykkir að gjaldskyldutími á P1- og P2-svæðum verði styttur um eina klukkustund á kvöldin frá 1. október 2026. Gjaldskyldu ljúki því kl. 20 í stað kl. 21 alla daga. Gert er ráð fyrir að þetta fyrirkomulagi gildi út árið 2026. Breytingin er í samræmi við verkefnalista meirihlutans, þar sem kveðið er á um að gjaldskyldutími bílastæða í miðborginni verði styttur í samvinnu við íbúa og fyrirtæki. Undanfarið hefur átt sér stað óformlegt samráð við íbúa og hagaðila um bílastæðamál og aðgengi að miðborginni. Þessi afmarkaða breyting er fyrsta skrefið í því ferli. Fram undan er heildarendurskoðun gjaldskyldukerfis borgarinnar með það að markmiði að einfalda og samræma kerfið og laga það betur að þörfum íbúa, rekstraraðila og gesta miðborgarinnar. Sú vinna verður unnin í formlegu samráði við íbúa og rekstraraðila, meðal annars með könnun á reynslu þeirra og viðhorfum til gjaldskyldu og bílastæðamála. Áhrif breytingarinnar verði metin inn í breytingar og heildarendurskoðun.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja faglega endurskoðun á bílastæðamálum - enda var sú vinna hafin á síðasta kjörtímabili - en hafna því að kalla þessa fljótfærnislegu aðgerð meirihlutans viðeigandi “fyrsta skref“. Greining Bílastæðasjóðs sýnir að styttingin mun draga úr nýtingu bílastæðahúsa (sem eru stórlega vannýtt í dag), auka hættu á að lagt sé ólöglega, ógna öryggi gangandi vegfarenda og gera íbúum miðborgarinnar enn erfiðara fyrir að finna stæði við heimili sín eftir vinnu og á kvöldin. Óforsvaranlegt er að kasta yfir 40 milljónum króna í tímabundnar skiltabreytingar og tapaðar tekjur á einungis þremur mánuðum - áður en fyrirhuguð greining og íbúakönnun hafa yfirhöfuð farið fram. Þessi dýra skammtímalausn er sérstaklega furðuleg á sama tíma og starfsfólki borgarinnar er sagt upp í stórfelldum niðurskurði í nafni hagræðingar, máltíðir fyrir eldri borgara hækkaðar um 74% og mikilvægri þjónustu við viðkvæma hópa hætt og fleira í þeim dúr. Borgarsýn Samfylkingarinnar er skýr: Við viljum líflega, öfluga og gönguvæna miðborg. Greiða á fyrir aðgengi akandi gesta með því að beina bílum í vannýtt bílastæðahús borgarinnar og nýta göturýmið í þágu mannlífs og íbúa - en ekki með því að fylla íbúagötur af bílum í ókeypis stæði á kvöldin.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Miðflokksins:
Fulltrúi Miðflokksins telur að tímabil gjaldtöku á gjaldsvæðum P1 og P2 ætti að færa til fyrra horfs, þ.e. til kl. 18, eins og hún var fyrir lengingu til kl. 21. Stytting gjaldtöku um eina klukkustund gengur ekki nógu langt. Rétt er að minna á að upphaflegt markmið gjaldtöku með stöðumælum var að auka hreyfanleika og nýtingu stæða sem væru hugsuð fyrir aðgengi að verslun og þjónustu, en ekki tekjuöflun í sjálfu sér. Þörf er á heildstæðri skoðun á bílastæðamálum eins og unnið er að.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Hér er einhvern veginn byrjað á öfugum enda. Gert er ráð fyrir að leita samráðs hagaðila og íbúa um tímalengd bílastæðagjalda en það er búið að gefa sér hver tillagan eigi að vera. Hún á síðan að taka gildi 1. janúar. Best hefði verið að fara í formgert lýðræðislegt samtal að undangenginni upplýsingagjöf um „best practice“ með raundæmum annarra borga og í framhaldinu móta heildstæða tillögu sem kemur best til móts við íbúa, atvinnurekendur og aðra sem eiga leið í höfuðborgina. En svo er ekki farið með þessa tillögu. Hún hefði frekar átt að ganga út á samtal við íbúa og aðra um hugsanlegar breytingar án þess að gefa sér hver niðurstaðan verði.