Lögð fram umsagnarbeiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 10. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir umsögn vegna tilkynningar
Matfugls ehf.
til ákvörðunar um matsskyldu. Matfugl ehf. áformar að reisa nýtt hænsnabú í tveimur áföngum með byggingu fjögurra nýrra hænsnahúsa á Tindstöðum, samkvæmt greinargerð, dags. 15. júní 2026 (uppfærð 10. ágúst 2026), en heildarbyggingarmagn allra bygginga verður samtals 10.000 m². Gera má ráð fyrir að heildarmagn hænsnaskíts frá búinu verði 360-390 tonn á ári þegar búið er komið í fulla starfsemi skv. fyrsta áfanga, þ.e. stæði fyrir 28.000 stofnhænur. Í öðrum áfanga verður búið stækkað í 39.900 stæði og má áætla að heildarmagn hænsnaskíts að loknum þessum seinni áfanga verði 520-560 tonn. Allur hænsnaskítur, sem fellur til, verður nýttur sem áburður á ræktað og óræktað land. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. september 2026.