Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1076
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ALARK arkitekta ehf. , ásamt bréfi, dags. 18. ágúst 2026, um breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits vegna Vesturbugtar, reitir 03 og 04. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðir á reitum 03 og 04 verði stækkaðar til að skapa kantsvæði fyrir lagnir, staðsetning og fjöldi sorpgámareita verði breytt, kvöð um aðkomu neyðarbíla inn á baklóð verði felld niður og bílastæði fyrir búsetuúrræði fatlaðra verði færð til austurs, samkvæmt uppdr. Alark, dags. 18. ágúst 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir óveruleg breytingu á deiliskipulagi á grundvelli málsmeðferðar skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga og þarf að greiða skv. gr. 8.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025, áður en breytingin er auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.