Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1074
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða. Lóð Veitna fyrir nýja dreifistöð er færð nokkra metra til austurs samkvæmt uppdr. Nordic Office of Architecture, dags. 5. ágúst 2026.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Samþykkt að falla frá kynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda (og borgarinnar) og skerðir í engu hagsmuni nágranna hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.

Deiliskipulag
Deiliskipulag Sundahafnar
Samþykkt 20.05.1975 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag