Lögð fram umsókn
Veitna ohf.
, dags. 4. ágúst 2026, um framkvæmdaleyfi fyrir borun fjögurra nýrra vinnsluhola á lóð Veitna nr.2 við Engjateig, en reiturinn afmarkast af Kringlumýrarbraut til vesturs, Suðurlands-braut til suðurs og Engjateigi til norðausturs. Við útfærslu borteiga er gert ráð fyrir að hluti borhola verði staðsettur nokkra metra til vesturs utan núverandi lóðamarka til að lágmarka rask á trjágróðri sem þegar til staðar á reitnum. Gert er ráð fyrir að borholurnar verði boraðar hver á eftir annarri. Samkvæmt núverandi áætlun hefjast boranir á fyrstu holunni haustið 2026 og halda áfram yfir veturinn 2026–2027. Ef gera þarf hlé á borframkvæmdum verður gengið snyrtilega frá athafnasvæðinu á meðan, þ.e. vinnubúnaður fjarlægður og yfirborð athafnasvæðisins frágengið þannig að rask verði lítið áberandi. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2026.