Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Einars Sigurjónssonar, dags. 31. júlí 2026, ásamt bréfi dags. 29. júlí 2026, um enduruppbyggingu hússins á lóð nr. 37 við Eiríksgötu og 14-16 við Þorfinnsgötu. Óskað er eftir afstöðu og leiðbeiningum skipulagsfulltrúa er varðar fjölda íbúða, aðgengi og lyftuskyldu, bílastæði og byggingarleyfisferli. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026.
Jákvætt er tekið í að notkun húsnæðisins sé breytt í íbúðir og að fjöldi íbúða taki mið af upprunalegu fyrirkomulagi íbúða í húsunum, til samræmis við íbúaþéttleika byggðarinnar í kring, en án ítarlegri tillögugagna er ekki tímabært að taka afstöðu til frekari fjölgunar íbúða. Bent er á að gera þarf ráð fyrir lyftu, nema ætlunin sé að breyta innra skipulagi og fyrirkomulagi íbúða til upprunalegs horfs. Einnig þarf að gera grein fyrir bílastæðaþörf í byggingarleyfisumsókn eða deiliskipulagstillögu. Sjá fyrirvara og nánari upplýsingar í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. október 2026.