Lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar, dags. 22. maí 2026, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.182.3, Kárastígsreits, vegna lóðarinnar nr. 37 við Skólavörðustíg, sem felst í niðurrifi hússins og endurbyggingu þess í sömu götumynd. Einnig er lögð fram kynning, ódags., álit Minjastofnunar Íslands, dags. 12. febrúar 2026, og minnisblað VSÓ ráðgjafar, dags. 16. apríl 2026. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2026, samþykkt.