Lögð fram fyrirspurn
Smáragarðs ehf.
, dags. 19. maí 2026, ásamt greinargerð, dags. 19. maí 2026, þar sem óskað er eftir úthlutun og leigu á lóðunum nr. 6 og 8 við Norðurgrafarveg og 1, 3 og 5 við Málmsléttu og reisa þar vöruhús með tengdri þjónustu- og afhendingaraðstöðu, samkvæmt tillögu Smáragarðs, ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. september 2026.
Jákvætt er tekið í uppbyggingaráform
Smáragarðs ehf.
um vöruhús og tengda starfsemi á Esjumelum. Skipulagsfulltrúi telur þó að fyrirhuguð sameining lóða við Norðurgrafarveg og Málmsléttu samræmist ekki að fullu gildandi skipulagi og bendir á að lóð við Bronssléttu 6 sé betur til þess fallin að hýsa fyrirhugaða starfsemi. Unnt verði að skoða nánar deiliskipulagsbreytingar vegna byggingarhæðar, bílastæða og annarra útfærsluatriða á þeirri staðsetningu.
Sjá fyrirvara, leiðbeininga og skilyrða í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. september 2026.