Lögð fram fyrirspurn
Baldurs Tuma Baldurssonar
, dags. 13. maí 2026, ásamt bréfi PLAN studio, dags. 12. maí 2026, um að hækka þak yfir rishæð hússins á lóð nr. 68 við Ægisíðu. Einnig eru lögð fram fylgiskjöl; Ljósmyndir af húsi og lóð, aðalteikningar, deiliskipulag og tillaga að þakbreytingum. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2026.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2026.